Mrs Blue

Gyða Dögg

10.03.2008 15:06:32 / Gyda

Ný bloggsíða

Jaja langaði að breyta til hér er slóðin á nýju síðuna: 

http://www.123.is/gydasig/

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 18:47:56 / Gyda

Nýjar myndir

Bara að láta vita að það eru komnar nýjar myndir af þessu og hinu og líka á Myspace samt sömu myndirnar ok endilega skoða :)

Kveðja

Gyða Nobbari hehe

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 22:35:07 / Gyda

Nú þú hér....

Jaja Allesammen :)

 Hvað er í fréttum? Wats going on????

Ákvað núna víst ég sit uppí sófa á Neskaupsstað og er nýkomin með netið að skvetta inn.

Sma update:

Ég ætla nú ekki að rifja upp aftur lengst aftur í sumar en ég reyni mitt besta...

Sumarið fóst mest í mikilli vinnu og það var ekki mikið merkilegt.

Eina helgina skelltum við okkur á ættarmót í Jökuldal sem var bara mjög gaman, það sem var best við það að það var svo geggað veður allan tíma, við komum öll til bara frekar brunnin sem ja ekki svo gaman en munið slagorðið bruni verður að brúnku :) ekki satt

Svo fór ég í sumarfrí í 2 vikur - það frí fólst mest í að flytja úr fallegu íbúðinni minni og þrífa hana alla og flytja á endastöðina Neskaupsstað.... Við fluttum semsagt á Norðfjörð miðvikudaginn seinasta, þá byrjaði skólinn hjá Robba og Árna sem leigir með okkur. Íbúðin er bara mjög fín er samt alveg að farast úr geymslupláss leysi. Erfitt þegar maður á helling af dóti og kemur því fyrir í Eldhúsinu Sínu og flytur svo og allt kemst ekki fyrir.

Og það sem er ennþá verra er að mig vantar stærri fataskáp..... nema að ég láti Robba búa í tösku hihi möguleiki.....

 Við búum semsagt í 3 hæða húsi á efstu hæðinni, fyrir neðan okkur búa Björgvin og Hrefna með sætustu tvíbura í heimi sem ég vonast til að fá að passa bráðum :)

Það sem er annars dæmigert er að nú ætlaði ég að blogga og ég man ekkert gáfulegt til að segja

 Á döfinni um helgina er busaball og harmonikkuball á Egilsstöðum en ég ætla að skreppa í vinnuparty á reyðarfjörð um helgina... mjög spennt fyrir því

ANNARS eru flest allir stungnir af til Reykjavíkur Magga, Simmi, og svo voru Þorri og Fríða einnig eru Eva og Erna líka farnar suður en það er svo sem fínt þá fer ég suður og hitti alla í stað þess að fara norður og líka suður

Fleira hujj juju Systir mín er ólétt og á að eiga í Desember get ekki beðið eftir að fá nýtt frændsystkini og sjá það alast upp :) hin hafa öll alist upp í reykjavík

Sem minnir mig á það ég ætla að taka rúnt á barnalandi og skoða sætu frænkur og frændur mína oki þangað til næst

Sia


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 23:18:50 / Gyda

Hallllló

Ætlaði bara að láta við að ég er búin að setja myndir frá helginna, skelltum okkur á Mario Bros djamm í valaskjálf þvílíkt stuð :) mikið fjör líst vel á þennan nýja skemmtistað

En ja ég blogg meira seinna klukkan orðin altof mikið

Heyrumst seinna

Gyða kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 17:07:26 / Gyda

Hæ alle sammen

Þetta er alveg hræðilegt hvað maður getur verið latur, alltaf segir maður,ég blogga á morgun eða næsta dag eða hann næsta. En jaja víst ég ligg í makindum mínum í sófanum og horfi á Guffagrín snildar teiknimynd. En það sem hefur verið í gangi síðustu vikur er að ég hef bara verið að vinna á fullu hlakka til að fá útborgað næst :) Við erum semsagt byrjuð að steypa í hleifar sem er bara frábært hlakka til þegar áverið fer í fullu í gang.  Um á næstu dögum er svo allt að gerast um Næstu helgi er Eurovision og kosningar þannig að það verður létt gegguð helgi þá er ég að vinna kl 8 um kvöldið til 8 um morgunin þannig að ég missi að Eurovision :( en það verður bara að hafa það. Eg mu  senda Eika allar mínar ljúfustu hugsanir um að hann muni rústa þessari keppni. Svo um þar næstu helgi á að vera fyrsta ballið í Valaskjálf í hva 3-4 ár, ég er ekkert smá spennt og ég kmest á það því ég verða að vinna 8 um morgunin til 8 um kvöldið þannig að ég kemst á ball jibbí :) og það á að meira að segja að vera frítt kanski inn sem  er enn betra:) þannig að það eru bara góðir tímar frammundan. Svo fara allir að fara að koma heim  í sumarfrí eða vinna og það er alltaf svo gaman á sumrin þegar allir koma. Elska sumrin á Egilsstöðum. En það næsta á dagská hjá mér og kallinum er að flytja á Neskaupsstað, já neskaupsstað. Róbert ætlar að skella sér í skóla og hann nennir ekki að keyra endalaust fram og til bara sem er bara meira en skiljanlegt þannig að ef einhver veit um íbúð á nesk endilega láta vita og einnig ef einhver er að leita sér að íbúð þá erum við líka að fara að leigja okkar út. Þannig að endilega hafið samband. En jaja nú ætla að ég kvíla mig svoldið, reyna að náþessari smá þynnku úr mér eftir gærkveldið, ég magga og Þuriður hittums t og elduðum kínverskan mat með forrrétt og eftirrétt þvílíkt gott ummm fórum svo á hetjuna og hún sökkaði feittttttt bara útlendingar og engin sæti þannig að við vorum komnar heim fyrir 1 hehe góður árangur :) Mæli með hetjunum á föstudögum þá erum við laus við flesta útlendinga:)   En ja heyrumst seinna reyni að mæta mig í þessum blogg heimi Minni á myspacið mitt    myspace.com/gydda   

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 14:21:46 / Gyda

Hæ hæ hæ hæ hæ

Já já voðalega er maður eitthvað latur við þetta. Sérstaklega þegar maður er komin með myspace líka hehe og svo er maður búin að vinna eins og maniak ekki búin að fá frí í 2 vikur en fæ loksins frí á mánudaginn sem verður ljúft

Annars er vinnan bara mjög fín þetta er allt að smella saman, það er ætlunin að byrja að steypa í næstu viku, vonandi gengur það bara sem best. Ég byrjaði á vöktum í gær og er að vinna í dag 4-12 og um helgina dagvakt 8-8

 

en jaja ætla út á rúntinn

sjáumst


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 22:39:46 / Gyda

Vesen Vesen

Hérna ákvað bara að setja allar myndirnar á gamla staðinn undri Myndir - Mínar myndir

það var fljótlegasta leiðin... :)

Bara að láta vita :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 20:54:28 / Gyda

Hæ allir :)

Jaja... Ég er að rembast við að setja inn myndir. Var að búa mér til MySpace þannig að myndirnar verða þar frá útlanda-ferðinni. Ég setti link á hana neðst á síðunni hjá hinum mynda-tenglunum.

Spurning hvort ég eigi að steypa mér í smá ferðasögu þar sem ég hef ekkert annað betra að gera nema kanski þvo öll þessi föt sem ég keypti mér úti hehe svolítil vinna þar :)

En ja ferðasagan hljómar svo:

Ég byrjaði á því að fljúga suður á föstudag um 2 leytið, kíkti í heimsókn til bróður míns og fjölskyldu hans. Um kvöldið kíkti ég á Fríðu og Hauk og fór í Nitendo Wiii - sem er snilld ekkert smá fyndin tölvuleikur.

Um 11 leytið var ég sótt og keyrði leigubíll okkur útá keflavíkurflugvöll og þá hófst biðin, flugið okkar var ekki fyrr en um 5 þannig að við biðum í slatta tíma, við keyptum okkur bara spil og sum okkar sem höfðu lyst á áfengi til að róa taugarnar :) Sumir voru ekki uppá sitt besta í heilsunni, nefni engin nöfn..

Við flugum frá Keflavík til Boston það tók um 5 tíma og ekkert sofið í flugvélinni - Frábært-. Við gistum á Hilton hóteli í Boston sem var mjög nice, héldum svo áfram að fljúga um 9 leytið á leið til Wenatchee frá Seattle. Flugið tók 30 mínútur semsagt það er flogið frá Seattle yfir eitt fjall til Wenatchee. Flugvöllurinn í Wenatchee er minnsti flugvöllur sem ég hef séð, engar veitingar og ekki neitt. Það var eitthvað smá vesen með bílaleigubílana sem við áttum að fá og kona sem við hittum í flugvélinni sem by the way fannst alveg Amazing að við værum frá Íslandi var bara til í að fara 2-3 ferðar með okkur á hótelið og alles og bauð okkur meira að segja í mat til hennar og systur sinnar. En við létum því miður ekki verða af því hehe. Þegar við komum á hótelið og vorum búin að tjekka okkur inn vorum við frekar svöng og ákvaðum að finna okkur stað til að borða á. Við enduðum á stað sem heitir Sharks...Hann leit nú ekki svo vel út borðin sem maður sat við voru fiskabúr og fullt af litlum fiskum sindandi inní því, þetta var semsagt bæði bar og veitingastaður. Við pöntuðum okkur að borða og fór barþjóninn beint í að elda sjálfur, og svo sáum við að hann hoppaði fram líka og afgreiddi kúnnana... eftir svona rúman hálftíma kom hann fram með matinn, svartur á höndunum sem var ekki beint girnilegt hehe. Strákarnir pöntuðu sér hamborgara, 2 af þeim voru chili borgarar sem strákarnir þurftu beinlínir að pína oní sig því þeir voru svo sterkir, sem var mjög fyndið. Pizzurnar sem við Sigga borðuðum voru bara ágætlega góðar miðið við að borgarar strákanna og franskarnar voru kaldar.

-En þar sem ég ætla ekki alveg að drepa ykkur úr leiðindum með einhverjum smáatriðum og maður man kanski ekki allt þá ætla ég að kötta þetta soldið niður.

- Í Wenatchee er stéttafélag og er allt öðruvísi háttað en hérna heima. Við máttum eiginlega ekki gera neitt en svo var þessi frábæra vakt að vinna og leyfði okkur að vinna smá. Þetta var allt saman frábært fólk og ég væri alveg til í skreppa þangað aftur um sumartíma. Þetta er stærsti epla-eitthvað..heh..það eru eplatré útum allt og fjöll eins og hér og tré á toppum fjallanna sem var mjög skrítið.

- Á frídeginum okkar fórum við í bæ sem hét "Elevenvorth" eitthvað svoleiðis, fólkið í Wenatchee kallaði hann "tourist-trapp" - sem átti bara mjög vel við hann þarna var böns af búðum með allskonar dóti í allt frá jóladóti í klósettpappírhengi sem voru sonna kallar "froskur" og megnið af þessum búðum var með safna dótið... en samt mjög flottur bær, það var tónlist útum allt og svona vagn með hestur dró það er mynd af því á myspacinu mínu.

- Já, ég fór sko í lítið spilavíti í Wenatchee, prufaði 21 í fyrsta skipti í alvörunni og með spilapeningar, það var bara mjög gaman þótt að ég tapaði smá pening, um að gera að hafa bara gaman af þessu:) Við fórum einnig í keilu og auðvitað var ég best hehe :) þótt að ég vann ekki alltaf var ég samt best...nei nei ja það eru einmitt nokkrar flottar sveiflu myndir af mér, Bjarka og Siggu í keilu, sýnir bara að við erum pro ekkert annað:) Ekki satt?

- Jaja svo kom af þeim degi að við þurftum að yfirgefa hillbillybæinn Wenatchee og halda á leið til Kanada. Ferðin byrjaði nú ekki vel, þegar við komum uppá flugvöll í Wenatchee um hálf 5 um morgunin, vorum við fjögur, ég, Mikki, Sigga og Jóakim ekki bókuð með vélinni til Seattle en Lynn, Ormarr, Mark og Bjarki voru bókaðir. Ormarr ákvað að vera eftir með okkur en hinir fóru..Eftir að hafa setið á flugvellinum og spilað Gosa (þar sem ég tapaði endurtekið og verður það spil ekki endurtekið í bráð) í sonna 2 tíma þegar við fengum loksins bílaleigubíla og var ákveðið að keyra til Seattle. Koma þá til sögu 2 Bestu ferðafélagar í heimi :) Við Sigga vorum með Jóakim í bíl og Jóakim keyrði (ég mátti ekki keyra, verð að vera 25 eða eitthvað sem var bara fínt og Sigga var ekki með ökuskirteinið sitt) Auðvitað sofnuðum við á leiðinni sem var mjög ljúft - sváfum semsagt alla leið til Seattle. Þegar þangað var komið drifum við okkur að tjekka okkur inn, heppilegt fyrir okkur þá var búið að seinka vélinni um klukkutíma, þannig að við héldum að við hefðum nógan tíma til að fara í gegnum öryggistjekkið, þetta var alveg endalaus biðröð. Ég, Jóakim og Sigga hlupum á undan til að ná flugvélinni og við rétt svo náðum henni, en Mikki og Ormarr rétt náðu henni ekki það var nánast skellt á nefið á þeim. Þarna vorum við 3 á leið til Chicago og ég og Sigga vorum ekki með farseðlana okkar í næsta flug. Þegar við nálguðumst flugvölinn í chicago var okkur tilkynnt að ekki væri víst að við gætum lennt vegna slæmst veðurs og var ætlunin bara að sóla yfir flugvöllinum, en svo var ákveðið að lenda og tókst það bara mjög vel :) sem var frábært. Jaja þarna erum við stödd í Chicago og það er víst klikkað veður í Montreal þannig að fluginu okkar var aflíst. Jaja eftir 2-3 tíma birtust svo Ormarr og Mikki á flugvellinum, þeir höfðu þá náð fluginu eftir okkar. Við áttum svo flug daginn eftir um kvöldið þannig að við eyddum heilum degi í Chicago, skelltum okkur á Sædýrasafn skoðuðum fiska, krabba og ýmislegt fleira.

- Þegar við lenntum svo í Montreal var ferðinni heitið keyrandi til Quebeck í Kanada þar sem næsta álver beið okkar, þar sem við lenntum ekki fyrr en um hálf 12 vorum við ekki komin á hótelið fyrr en um 2 - hálf 3 og auðvitað sváfum við Sigga alla leiðina þangað, vorum ekki beinlínis að fara að breyta venjunni hehe.

Jaja ég ætla að láta þetta nægja núna þarf að vinna í fyrramálið og vakna kl korter yfir 6 en ég klára söguna seinna oki

endilega skoðið myndirnar

þangað til næst

Later

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 00:55:22 / Gyda

Halló halló halló

jaja hvað segið þið þá?

 Ég hef það mjög gott í Bandaríkjunum, núna er ég soldið frá NY í bæ sem heitir Massena og verð þar þangað til á miðvikudaginn og á fimmtudaginn hefst heimferðin. Er farin að hlakka soldið mikið til að koma heim sakna ykkar allra. En ég ætlaði bara aðeins að kvitta nokkur orð hérna, batteríið í tölvunni er alveg að verða búið, en ég mun skrifa ferðasöguna þegar ég kem heim. Helgin fer líkalega í mikinn svefn og vera með Róbert á milli :) og kanski smá tími fyrir rúnt með uppáhaldsfólkinu mínu en ja

við verðum í bandi þegar ég kem heim :)

Sjáumst

Kveðja frá útlöndum USA

Gyða


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 21:52:14 / Gyda

Ferðalag :)

Jaja þá er komið af því, á morgun fer ég suður  og svo á laugardaginn út. Ég fer semsagt með 3 öðrum og svo verður alltaf einhver Leiðtogi með okkur. Hlakka bara mjög til, gaman að prufa og sjá svona nýja hluti. ´

Annars eitthvað að frétta eins og sumir sáu kanski á Möggu bloggi skelltum við okkur á Hestamannaball um seinustu helgi og það var bara heljarinnar stuð, ákvaðum að nota tækifærið þegar var ball á héraði og taka sporin, var með nokkrar harðsperrur í 3 daga eftir á, svo voru við Róbert bara veik á sunnudag og Mánudag. Svo var vinnuvélanámskeið þriðjudag og miðvikudag og tók svo próf og náði því með stæl (vona ég) svo þegar ég kem aftur heim fer ég líklega í þjálfun á td lyftara, dráttavél, valtara og fleiru sem verður bara snilld.

 Núna ligg ég bara heima með kvef og hálsbólgu og vona að ég verði betri á næsti dögum, er ekki alveg að meika að vera eitthvað slöpp úti.

Annars er voða lítið í fréttum, við hjúin ætlum að kúra saman sem ég er að fara að yfirgefa greyið í 3 vikur:( og við ætlum að horfa á læknaþáttinn House


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 23:17:32 / Gyda

Komin með nýja vinnu og er sátt

jaja nú er ég semsagt orðin meðlimur álverja sem ég er bara mjög sátt með, byrjaði á föstudaginn og var að máta föt og skemmtilegt og get ekki beðið eftir að taka mynd af mér því ég verð í skóm með stáltám sem hækkar mig um svona 5 sentimetra sem er bara fínt ég verð með appelsínugulan hjálm sem stækkar hausinn á mér um helming því hann er nú ekki stór fyrir og til að toppa allt er ég í appelsínugulri og svarti úlpu sem er öruglega svona 10 kíko og þar sem minsta stærðin er Small sem er eins og Large á mér þá er það mjög fyndið og hún nær mér niður á mið læri :) og auðvitað svo öryggis glerautu... þannig að ég verð bara flott í þessu :) en annars legst starfið bara vel í mig :) bara mjög spennandi, allir svo glaðir og spenntir fyrir Álverinu.

En ég ætla að gera það sama og Heba og Magga að setja nokkrar óþarfar upplýsingar um mig :)

- Ég á mjög erfitt að verða sátt með hárið á mér, það liggur við að verði að koma hverju og einu hári á sinn stað...
- Ég er með einhverja asnalega fóbíu fyrir karlmönnum sem eru berfættir, þoli þá ekki
- Ég er eins og Magga, er ekkert voðavel við þegar einhver kemur við nefið á mér

Heyrðu ja mér finnst þetta bara nokkuð erfitt finn ekkert núna sem er óþarft um mig, Robbi segir að ég sé fullkomin :) ég trúi því alveg :) hann er yndislegur

en við ætlum að skríða uppí rúm maður þarf að vakna svo snemma á morgun ég kem með fleiri punkta seinna þegar ég man eitthvað

heyrumst seinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 15:42:59 / Gyda

Ja hér er ég hér er ég hér er ég

Jaja ákvað bara svona rétt að láta vita af mér hef ekkert skrifað í nokkrar vikur hehe :) sorry lesendur :( en annars hefur nú ekki mikið drifið á daga mína Magga er jú komin heim og fórum við skvísurnar 3 á djammið um helgina sem var bara helvíti gaman þrátt fyrir nokkra marbletti og fatlaða hendi hehe :) en næst á dagskrá er Álverið sem ég byrja í Föstudaginn 2 febrúar og ég hlakka bara slatta til, Heba er jú byrjuð í Álverinu en yfirgefur mig í mánuð og fer til Kanada til að læra að vinna í álverinu, mér færist ekki sá heiður að fara þangað enda ég er líka bara soldið sátt því ég gæti ekki auðveldlega farið frá Robba í mánuð og í þokkabót vera með fólki sem maður er búin að þekkja í mánuð ... en hún stendur sig vel Heba, dugnaður í henni. Annars er ég í smá kaffi í vinunni (Húsasmiðjunni) sem er bara mjög fínt :) en hætti samt í lok janúar. Gaman að byrja á einhverju glæ nýju, þá líður manni ekki eins og byrjanda því allir eru jafnir ja nema þeir sem eru búnir að læra eitthvað á undan okkur en við náum þeim brátt :)

En ja annars er ég bara ángæð, líður vel, hamingjusöm... væri samt alveg til að vinna í lottó eða eitthvað.. er komin með einhverja þrá að vinna í einhverju... ég vinn aldrei neitt...

En jaja best að haska sér aftur að vinna og gera eitthvað gagn

Efast um að ég muni kvitta fyrr en einhverntíma í febrúar en þið verðið bara að bíða spennt þangað til :)

Þangað til þá Sjáumst seinna

Kv. Gyða


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 23:32:11 / Gyda

Jaja Góðir gestir

Hvað ætli sé langt síðan ég skrifaði seinast ????? ég hef góða afsökun .. Próf, Útskrift og Vinna.... samasem brjálað að gera hjá mér. Þar sem klukkan er orðin margt og ég þarf að vakna snemma í fyrra málið ætla ég bara að rita nokkur orð Prófin gengu mjög vel Náði öllum prófunum var með 3 8ur, 3 7 ur eina 6u og eina 5u :) Semsagt mjög góðar Útskirfareinkunir :) Tek fram að fimman var í íþróttum hehe samt ekki stollt af því :) Svo tók við viku brjáluð vika að undir búa útskrift, fara í klippingu og litun, klippa fjölsylduna, kaupa í kökugerðina, baka og búa til gotterí og margt fleira. Útskriftin tókst líka svona dásamlega vel :) Er samt engan vegin að trúa því að ég sé útskrifuð hehe Ég er búin að setja inn myndir frá Stóra deginum :) koma kanski fleiri seinna En ég fékk margt skemmtilegt s.s. hring, sléttujárn, staup, hálsmen, styttu, blóm.... Semsagt vel heppnaður dagur Svo ákvaðum við útskriftarnemarnir að leigja Hetjuna um kvöldið og héldum smá upp á útskirftina saman :) mjög gaman - Frábær dagur- Svo núna tekur bara vinnan við vinn alla daga fram að jólum .. vinn meira að segja á þorlaksmessu 5-10 og held bara að það verði fínt í fínum fötum og með jólasveinahúfu :) Áður en ég hætti vil ég óska Systur Tengdó og manni hennar með litlu dúlluna sem þau eignuðust í gær hlakka til að sjá hana á næstuni :) Elska börn :) :P en ætla að skríða uppí rúm :) heyrumst seinna

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 22:56:32 / Gyda

Hallo hallo hallo

Hvað segiði þá gott góða fólk?  Ég segi bara allt ágætt fyrir utan þetta andsk... veður brjálaður vindur og rigning - þoli ekki svona veður gat eiginlega ekkert sofið í nótt útaf lætum - þvílík læti og heyri það það er aftur byrjað að hvessa og á að vera svoleiðis fram á miðvikudag en juju maður býr nú á Íslandi maður verður að sætta sig þetta blessaða veður.

En jaja núna eru bara 3 vikur eftir af skólanum eins skemmtileg og það hljómar get ekki beðið eftir að útskrifast hlakka svo til að klára þetta og fara bara að vinna :) gaman gaman gaman ...en það er samt nóg að gera í skólanum þessar síðustu viku..

á laugardaginn síðasta fórum við út að borða merð fyrirtækinu hans Robba á egypits hlaðborð og það var þvílíkt stuð fékk mitt hvítvín og fleira :)

Núna í kvöld er óvissuball þvílíkt stuð fyrir þetta ungafólk - maður man gömlu góðu dagana þegar maður fór á öll þessi böll góðir góðir tímar :)

en jaja á morgun er ég aftur að fara að passa Írisi sætu Lilja og Sindri eru að fara út að borða þannig að ég fær að passa litu :) finnst það bara gaman

meira í fréttum ummm já Jólin eru svo sannalega komin í húsasmiðjunni þar sem ég er að vinna - og allir kvarta og kveina yfir því hvað þetta er snemmt ég tek ekki lengur mark á þessu fólki er bara orðin frekar pirruð á að heyra fólk alltaf segja þetta þegar það kemur "hva bara komin jól strax" ooo ef þeim finnst þetta svona snemmt af hverju er það þá að kaupa jóladót - kanski komast sumir snemma í jólaskap eins og ég hehe :) en juju svona er jú víst lífiið :) :P

Annars var ég að koma af svona föndur - sýningu - þar var til sýnis allskonar föndurdót fyrir jólin og fleira svo sem flottir kertastjakar, óróar, og allskonar skraut. Ég keypti mér svona sérvíettu standa úr eplum mjög flott :) maður verður að fara að föndra það er víst

en ja ætla að fara að kúra og horfa á mynd og kanski poppa :)

þannig að við heyrumst seinna bæ allir sem lesa þetta og endilga komið í húsasmiðjunna og heilsið uppá mig :)

BÆBÆ


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14